Spurningar
Svör um hvað Telio er og hvernig það fer með bókhaldið
Stutt svör. Ef þitt er ekki hér, skrifaðu á hugvinna@hugvinna.is.
Um Telio
Hvað er Telio?
Bókhaldsaðstoð fyrir íslensk fyrirtæki. Það les bankann og Payday, parar saman og undirbýr drög að því sem vantar.
Fyrir hvern er það?
Fyrirtæki sem halda bókhaldið í Payday, og bókarana sem sjá um þau.
Er Telio bókhaldskerfi?
Nei. Payday er áfram kerfið sem gildir. Telio er lag ofan á því.
Kemur það í stað bókara eða endurskoðanda?
Nei. Það tekur innsláttinn og kvittanaleitina; dómgreind og bókun eru áfram hjá fólki.
Svona virkar það
Bókar Telio eitthvað án samþykkis?
Nei. Allt sem það skrifar eru drög í Payday sem manneskja bókar.
Hvernig virkar afstemmingin?
Bankalínur eru sóttar úr banka-API og paraðar við útgjöld í Payday eftir greiðsludegi, upphæð og söluaðila. Óparaðar línur eru listaðar með því sem þær vantar.
Við hvaða kerfi tengist það?
Landsbankann og Payday í dag. dk er næst.
Getur það lesið kvittanir og reikninga?
Já. PDF og myndir, áframsend með tölvupósti, valin úr tengdu pósthólfi eða hlaðið upp. Söluaðili, dagsetning, upphæð og VSK eru lesin og borin saman við bankalínuna.
Hvað með VSK?
Reglur Payday eru innbyggðar, og þú getur bætt við „enginn VSK hér“ reglum á lykil eða lánardrottin. Drög sem brjóta reglu eru stöðvuð áður en þau fara.
Gögn og öryggi
Hvar eru gögnin geymd?
Google Cloud í Evrópu (europe-west1). Aðgangsorð eru í Secret Manager, aldrei í gagnagrunninum.
Eru gögnin notuð til að þjálfa gervigreind?
Nei. Skjöl fara til líkansins aðeins til lesturs og þjónustuaðilarnir þjálfa ekki á þeim.
Hvað þýðir aðgangur að pósthólfi?
Lesaðgangur. Telio leitar í kringum dagsetningu færslu til að finna kvittunina og sækir viðhengi aðeins þegar þú festir það við. Það sendir aldrei, breytir né eyðir pósti.
Að byrja
Hvernig byrjum við?
Sendu okkur póst. Við tengjum bankann og Payday með ykkur og förum yfir fyrsta mánuðinn saman.
Getum við hætt?
Já, hvenær sem er. Afturkallaðu aðgang að banka og Payday og vinnusvæðið hættir að lesa.