Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 18. október 2026
Telio er rekið af Hugvinnu ehf., Reykjavík („við“). Telio tengir banka, bókhaldskerfi og pósthólf fyrirtækis svo hægt sé að stemma af og skjala bókhaldið með minni handavinnu. Hér er útskýrt hvaða gögn Telio vinnur, hvers vegna, hvar þau eru geymd og hvaða réttindi þú hefur.
Hver á gögnin
Telio er verkfæri sem fyrirtæki (viðskiptavinir okkar) og fólkið sem þau bjóða inn í vinnusvæðið sitt nota. Fyrir rekstrargögn í vinnusvæði er viðskiptavinurinn ábyrgðaraðili og Hugvinna vinnsluaðili sem fer eftir fyrirmælum hans. Fyrir aðgangsgögn um fólkið sem skráir sig inn (nafn, netfang, innskráningarfærslur) er Hugvinna ábyrgðaraðili.
Hvað við vinnum
- Aðgangsgögn: nafn, netfang og auðkenningarfærslur, í gegnum Firebase Authentication.
- Bankagögn: listar yfir reikninga og kort og færslur sóttar úr API bankans (Landsbankinn) með aðgangi sem stjórnandi vinnusvæðisins vistar. Færslur eru sóttar þegar þú hleður þeim eða þegar klukkutímavöktunin keyrir, og eru geymdar í minni eða sem „útistandandi atriði“ sem þarfnast athygli.
- Bókhaldsgögn: útgjöld, bókhaldslyklar, lánardrottnar og dagbókarfærslur sem eru lesnar úr og skrifaðar í bókhaldskerfið þitt (Payday) með API-aðgangi sem þú gefur upp.
- Kvittanir og reikningar: PDF- og myndskrár sem þú hleður upp, áframsendir í pósti eða velur úr tengdu pósthólfi. Gervigreindarlíkan les úr þeim seljanda, dagsetningu, upphæð og VSK, þær eru hengdar við samsvarandi útgjald í bókhaldskerfinu og geymdar aðeins þar sem eiginleiki þarf á þeim að halda (áframsendar kvittanir sem bíða staðfestingar).
- Póstgögn (valfrjálst): ef stjórnandi vinnusvæðis tengir Gmail-pósthólf fær Telio lesaðgang eingöngu. Telio leitar að skeytum í stuttum glugga í kringum dagsetningu bankafærslu, les hausa, brot, meginmál og viðhengjalista til að raða þeim, og sækir viðhengi aðeins þegar þú velur að hengja það við. Telio geymir ekki innihald póstsins, sendir hvorki, breytir né eyðir pósti, og notar innihald hans ekki til annars en að finna kvittunina fyrir færslu.
- Notkunargögn: beiðnaskrár sem þarf til að reka og villuleita þjónustuna, og vörugreining um hvernig forritið er notað.
Hvers vegna
Til að veita þjónustuna sem þú baðst um: stemma bankahreyfingar af við bókhaldið, finna og hengja við skjalið á bak við hverja færslu, undirbúa drög að færslum og benda á það sem þarfnast athygli. Lagagrundvöllurinn er samningurinn við viðskiptavininn og, fyrir aðgangsgögn, lögmætir hagsmunir okkar af því að reka örugga þjónustu.
Google-notendagögn
Notkun Telio á upplýsingum úr Google API fylgir Google API Services User Data Policy, þar með talið kröfum um takmarkaða notkun (Limited Use). Gmail-gögn eru aðeins notuð til að finna kvittanir fyrir bankafærslur í vinnusvæðinu sem veitti aðganginn. Þau eru ekki flutt til þriðja aðila nema til að veita þann eiginleika, ekki notuð í auglýsingaskyni, og ekki lesin af fólki hjá Hugvinnu nema með skýru leyfi þínu vegna aðstoðar eða þar sem lög krefjast. Þú getur afturkallað aðganginn hvenær sem er í stillingum Telio eða á öryggissíðu Google-reikningsins þíns.
Hvar gögnin eru geymd og hverjir aðstoða
- Google Cloud / Firebase (ESB-svæði, europe-west1) hýsir forritið, gagnagrunninn, skráageymslu og aðgangsupplýsingar. Aðgangur að banka, bókhaldi og pósthólfi er geymdur í Google Secret Manager og aldrei í gagnagrunninum.
- Anthropic og Google veita gervigreindarlíkönin sem lesa kvittanir og svara spurningum í spjallinu. Aðeins skjalið eða spurningin sem verið er að vinna er send, og þessir aðilar þjálfa ekki á gögnunum.
- SendGrid afhendir tilkynningapóst og tekur við kvittunum sem þú áframsendir á Telio-innhólfsnetfangið þitt.
- Landsbankinn og Payday eru kerfin sem þú tengir; þeirra eigin stefnur gilda um gögn innan þeirra.
Gögn fara aðeins út fyrir EES til aðila sem eru bundnir af stöðluðum samningsákvæðum eða ákvörðun um fullnægjandi vernd.
Hve lengi við geymum þau
Aðgangsgögn á meðan þú ert með aðgang. Vinnusvæðisgögn á meðan viðskiptavinurinn er með vinnusvæði, og þeim er svo eytt innan 30 daga frá beiðni um eyðingu. Vistuðum aðgangsupplýsingum er eytt um leið og tenging er aftengd. Skrár eru geymdar í allt að 90 daga.
Réttindi þín
Þú getur óskað eftir aðgangi að, leiðréttingu á, útflutningi eða eyðingu persónuupplýsinga um þig, og takmörkun á eða andmælt vinnslu þeirra, með því að skrifa á hugvinna@hugvinna.is. Ef þú ert ekki sátt(ur) getur þú kvartað til Persónuverndar.
Breytingar og samband
Breytingar á þessari stefnu birtast hér og dagsetningin að ofan er uppfærð. Spurningar berist til Hugvinnu ehf., hugvinna@hugvinna.is.